NEXT UP ⟶ IZMIR, TURKEY.

19:56




Já ævintýrin byrja heldur betur snemma í ár. Ég fékk tölvupóst í fyrradag um námskeið í Tyrklandi. Það urðu forföll í ferðina og því eitt laust pláss. Í hvatvísi minni sótti ég um, og viti menn - Ég er á leiðinni til Izmir á MIÐVIKUDAGINN.


Ég mun dvelja þar í viku og vera á námskeiði sem nefnist "Don't let technology take over your life". Þetta námskeið verður algjör afeitrun. Engir símar, tölvur, myndavélar. Engin tækni. Ekki neitt. Samkvæmt dagskránni mun ég m.a. mjólka beljur og fara í jóga!


Því miður verða þá myndirnar fáar sem engar en ég mun setja inn færslu eftir ferðina.


Ég er búin að gúggla smá og er ekki frá því að ég sé smá heilluð. 







Á heimleiðinni verður svo tekið stutt stopp í Kaupmannahöfn í nokkra klukkutíma. Ekki leiðinlegt það. 


Í Kaupmannahöfn fyrir ári. Með Monki poka að sjálfsögðu. 



Þá er bara að pakka í tösku.



GB -

You Might Also Like

0 ummæli

VINSÆLUSTU FÆRSLURNAR

HAFA SAMBAND

gudfinnabirta@gmail.com