KÍNA
05:44
Það var lítið sofið fyrir brottför. Lagt var af stað kl 06:30
og við vorum mætt í Leifsstöð kl 7. Til allrar hamingju klikkaði WOW air ekki
og við vorum mætt á London Gatwick 20 mínútum fyrr en áætlaðist. Við fundum
okkur kósý stað til að borða á og nelgdum okkur á sæti þar sem innstunga var í
augnsýn. Þarna plöntuðum við okkur í 5 tíma og horfðum á þætti, borðuðum og
drukkum kaffi.
Loksins var komið að check-in og það gekk smurt fyrir sig (fyrir utan tollverði Gatwick sem fannst
bakpokinn minn eitthvað grunsamlegur og þreifuðu svoleiðis á honum bak og fyr og tóku sýni).
Svo var komið að flugi nr 2. London – Dubai, 7 tíma flug með stórveldinu
Emirates. Við löbbuðum inn í flugvélina og þar blasti við okkur þvílík paradís
og lúxus. Risastjór sjónvörp, hægindarstólar, flísteppi og kósýsokkar. Þetta
væri nú ekki frásögu færandi nema hvað að flugfreyjan segir mér að labba í hinn
endan á flugvélinni þar sem að zone-ið mitt er. Jebb þetta var fyrsta farrými
sem ég var að labba í gegnum. Ég tyllti mér svo í þrönga 3gja manna sætin og
fékk bómullarteppi og setti á mig skeifu.
Flugið var gífurlega lengi að líða og
bakið á mér höndlaði það takmarkað. Samt sem áður topp næs fyrirtæki með all
included hvað mat og drykki varðar og óhætt að segja að ég fór rúllandi út úr
vélinni (annað má segja um Stefán en hann fékk einhverja diet/sykursýkismáltíð
með engum eftirrétt né sykri). Svo lentum við, loksins eftir 7 leiðinlega klukkutíma,
í Dubai. Fínn flugvöllur og allt 100x of ýkt þarna (geri mig sterklega grein
fyrir því að einhverjir olíufurstar eiga þetta en djís lúís) Jæja eftir 4 tíma
bið á gullflugvellinum var loksins komið að seinasta fluginu Dubai – Beijing.
Langt flug, keimlíkt fluginu á undan og konan sem sat fyrir hliðiná Stefáni
bætti þó úr fluginu og hló ég dátt af frekju konunni sem að heimtaði meiri djús
og hjálpaði sér bara sjálf ef flugfreyjurnar voru ekki til staðar. Snarðóð kona
sem að varð alltaf extremely pirruð ef Stefán þurfti að pissa.
Biðum í endalausri röð útaf kínverska visanu enn það hafðist á
endanum. Fundum okkur svo bíl til að skutla okkur á hostelið og við tók
endalaus umferð, týndur bílstjóri og tveir smeykir íslendingar. Eftir 90
mínútur af rápi fram og til baka um Peking fann ÉG loksins hostelið og vorum þá loksins komin á áfangastað eftir 31
tíma ferðalag frá Reykjavík.
Peking
Vöknuðum 8:30 daginn eftir og þar með byrjuðum á ferðinni
okkar um Asíu. Ferðinni var að þessu sinni heitið í Forboðnu borgina og Silk
Market. Forboðna borgin var góð afþreying en við vorum tæp á því að eyða 2.000
kalli að fara þangað inn þar sem allar eigur manns eru teknar af manni og engar
myndir leyfðar. Eftir Forboðnu borgina kíktum við á hinn fræga Silk Market í
þeim tilgangi að kaupa á okkur úlpur fyrir Kínamúrinn. Eftir 3 skóparakaup
ákváðum við að taka okkur saman í andlitinu og fara leita af þessum helvítis
úlpum. Þarna fór fram heilmikið prútt og drama en þegar uppi var staðið
löbbuðum við, íslendingarnir tveir, alsælir þaðan út með ódýru úlpurnar okkar –
tilbúin að fara skoða Kínamúrinn.
SP að gæða sér á gucci kjúklingagrænmetisrétt á Silk Market
Við ákváðum svo í skyndi að kíkja í Temple of
Heaven en þegar að við mættum var byrjað að dimma svo mikið að það var lítið
hægt að sjá og allt orðið frekar draugalegt. Þannig að við ákváðum bara að
pilla okkur út sem var lengi gert sökum þess að þessi garður er margir
kílómetrar. Svo tók við leitin af taxa. Eftir að hafa verið neitað af 4 töxum
lentum við loksins á bílstjóra sem vildi keyra okkur. Við hefðum að sjálfsögðu
bara tekið lestarkerfið hefði Metro verið í augnsýn en það eina sem við sáum
var strætó (allar leiðbeiningar á kínversku) og leigubílar. Kínverjar eru
virkilega skrýtnar mannverur. Pirraðir og flest allir virkilega óhamingjusamir
(í framan allavega) leiðast útlendingar og það koma bara risastór dollara merki
í augun þeirra þegar þeir sjá okkur. Reynt að selja manni allan fjandann. Við
enduðum svo kvöldið á núðlum og rækjum!
Kínamúrsferðin hófst snemma og vorum við mætt kl 10 að múrnum
með guide. Það var í boði að labba upp 400 metra af tröppum eða fara í
‘skíðalyftu’ og sleðaferð til baka á 1.600. þið getið rétt svo ímyndað ykkur
hvort tilboðið við tókum. Lyftan var óstöðug en ég hélt kúlinu og ákvað að
vídjóblogga. Svo eftir nokkrar mínútur vorum við mætt. Kínamúrinn, þvílíkt
virki !! löbbuðum upp endalausar stigabrekkur og þetta var í einu góðu
reikningsdæmi ; háar hnélyftur + dauðaganga + tabata + ég í gallabuxum =
erfiðasti dagur lífs míns – En algjörlega þess virði! Við spókuðum okkur á
múrnum og nutum okkar að vera á einu af 7 byggingarundrum veraldar. Fengum
ekkert svakalega skemmtilegt veður, þoka sem að vísu hvarf og fengum smá
sólskín en það hefði mátt vera hlýrra (sem betur fer vorum við búin að gera
kjarakaup á þessum úlpum ;))
Þegar við vorum búin að vafra um Muitianyu vegginn
beið okkar þessi sleðaferð niður hæðina. Því miður fengum við ekki að fara eins
hratt og við óskuðum eftir – ástæðan voru tvær rússneskar konur fyrir framan
okkur á brautinni. Ekki nóg með að þær voru í pels og á pinnahælum (já – á Kínamúrnum, stay classy san diego) heldur fóru þær svo hægt niður brekkuna að
ég og Stefán náðum þeim og fylgdum þeim niður hæðina. Enn undir lokin voru
Babúskurnar byrjaðar að gefa í og allt endaði vel og sleðaferðin ekkert nema
snilld. Eftir Kínamúrinn fórum við í hádegismat á veitingarstað í Þorpinu. Við
borðuðum á okkur gat og héldum svo ‘heim’ uppá hostel og við tók hvíld.
Þessir fínu fellar biðu okkar þegar við komum niður
Rennibrautin !!
Þessir fínu fellar biðu okkar þegar við komum niður
maturinn var ekki síðri á þorpsveitingarstaðnum!
PS. Gleymdi að segja frá því að ég var búin að sjá
Kínamúrsferðina fyrir mér. Hoppa upp í rútu – hlusta á ipod – leggja mig.
Raunveruleikatjekk vol.1 :
Alls engin rúta, einungis sendiferðabíll, nokkuð viss um að sætið mitt hafi
aldrei verið upprunarlegt sæti heldur bara sótt svamp, lak og heftibyssu og
græjað þetta OG ég gleymdi ipodnum. En af einhverjum ástæðum steinrotaðist ég í
þessum bíl og vaknaði rétt áður en við lentum þar. Ég þarf augljóslega að fara
átta mig á því að ég er stödd í Asíu – ekki á leið í Terra Mitica á Benidorm.
Eftir hvíldina fórum við á virkilega vafasamlegan
veitingarstað og þar tók á móti okkur hlýlegur kall og bauð okkur að setjast
inn. (ég og Stefán erum nokkuð viss um að þetta hafi verið vændishús). Við
ákváðum bara að gerast djörf og panta okkur einhvern viðbjóð. Við pöntuðum
okkur svínseyra, andartungu og kalda önd. Já öll beinin fylgdu og þetta var
ekkert sérlega gott. Við daredevil-arnir fengum ekki nóg og um leið og við
vorum búin þarna var Night Market að byrja. Endalausir básar með skrýtnum mat.
Þar tókum við því ‘rólega’ og fengum okkur kolkrabba, smokkfisk, djúpsteiktan
banana og forboðin ávöxt. Misgott eins og það var margt.
Andartunga
Svínseyrað og köld andarbringa
Daginn eftir var svo stífplanaður dagur. Ræs snemma og byrjuðum daginn á að skoða Tiananmen Square og allt þar í kring. Svo lá leiðin í fyrsta strætómissionið að Ólympíuþorpinu. Strætóin stoppaði beint fyrir framan þorpið og blasti hið fræga Bird Nest fyrir augum okkar. (þess má til gamans geta að það kostaði 1 yuan í strætó sbr. 20 krónum). Við vorum hæstánægð að finna MCdonalds þar og Bic mökkuðum okkur í gang og fórum að skoða þorpið. Snilld í alla staði.
Eftir það fórum við í lestarmission og fórum að Temple of Heaven aftur því að við mættum svo seint seinast að það var byrjað að dimma svo hryllilega mikið. Engin vonbrigði þar á ferð og enduðum ferðina á myndartöku í boði kínverskra kvenna sem skelltu okkur í búning og tilheyrandi.
Eftir þetta var farið út og við áttuðum okkur á því að ein stærsta gata Beijing borgar var einni götu fyrir ofan hostelið. Fundum þar risastórt mall og þar var verslað smávegis. Borðuðum svo þar asískan mat (en ekki hvað?) og ég smakkaði sushi sem mér fannst ekki vont!! Kíktum svo út á götuna sem minnti helst á Drottningsgatan í Svíþjóð.
Eftir það fórum við í lestarmission og fórum að Temple of Heaven aftur því að við mættum svo seint seinast að það var byrjað að dimma svo hryllilega mikið. Engin vonbrigði þar á ferð og enduðum ferðina á myndartöku í boði kínverskra kvenna sem skelltu okkur í búning og tilheyrandi.
Temple of heaven
Temple of heaven að kvöldi til
Eftir þetta var farið út og við áttuðum okkur á því að ein stærsta gata Beijing borgar var einni götu fyrir ofan hostelið. Fundum þar risastórt mall og þar var verslað smávegis. Borðuðum svo þar asískan mat (en ekki hvað?) og ég smakkaði sushi sem mér fannst ekki vont!! Kíktum svo út á götuna sem minnti helst á Drottningsgatan í Svíþjóð.
Sushi
Night Market
SP með kolkrabba
Forever 21 var á Sun dong an verslunargötunni... þarf ekki að segja meira en það!
Beijing er búin að vera geðveik í alla staði. Er ekki frá því að það kítli í manni að langa skoða fleiri staði hér í Kína eftir þessa ferð. Hostelið okkar var sjúklega vel staðsett og staffið reyndi sitt besta að hjálpa okkur með allt sem við báðum um. Skildum við Beijing með smá söknuð en huggum okkur við það að það er nóg af ævintýrum eftir!
Næsta stopp okkar er Jakarta, það kemur blogg um það á næstunni.
Kínakveðjur,
Guffa og Stebbi!
2 ummæli
Djöfull er þetta gaman hjá ykkur! Er svo ánægður að lesa að þú hafir borðað sushi sem þér fannst ekki vont... SIGUR
SvaraEyðaHave fun!
Ótrúlega gaman að lesa ;) keep having fun!!!
SvaraEyða